4. flokk kvenna skipa 1. flokks leikmenn

Til að verða bestur æfir maður betur en hinir

05.02.2012 20:21:08 / stebbik

OPNUN NÝRRAR SÍÐU

VIÐ FÆRUM OKKUR YFIR Á NÝJA SÍÐU KR-4FLKVENNA.BLOG.IS

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2012 11:48:23 / stebbik

FORELDRAFUNDUR KLUKKAN 21:00

VIÐ SEINKUM FUNDINUM ÖRLÍTIÐ ÚT AF LEIKNUM :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2012 21:27:40 / stebbik

Góður sigur í fyrsta leik okkar

Flottur leikur í dag Það var óneitanlega sérstakt að mæta vængbrotnu ÍR liði í dag. Þær voru aðeins með 8 stelpur í hópnum þannig að við neyddumst til þess að lána þeim leikmenn. Kosturinn var hins vegar sá að í staðinn fengu allar að spila fullan leik. Við fengum ágætis æfingu út úr þessu. Byrjunarliðið var þannig skipað að í markinu var Imbó. Vörnin var skipuð þeim Soffíu, Marí, GÞ og Birtu. Á miðjunni voru þær Íris og Ásdís en hægra megin var Andrea Agla og Elín vinstra megin. Kolfinna var fyrir aftan Veroniku sem var fremst í liðinu. Sólveig, Marsí og Helga byrjuðu á því að spila með þeim í ÍR. Við vorum einfaldlega mun betri og byrjuðum af krafti. Við fengum nokkur góð færi áður en Elín náði að skora fyrsta markið okkar eftir að hafa stungið sér í gegn. Eftir þetta var engin spurning um hvort liðið var sterkara. Veronika, Íris 2 og Kolfinna gerðu næstu fjögur mörkin og við leiddum 5-0 í hálfleik. Við róuðumst aðeins í síðari hálfleik en vorum samt alltaf líklegri til að skora. ÍR-ingar náðu þó að lauma inn marki eftir að við urðum manni færri þegar Ásdís lét reka sig út af (já... það hljómar fyndnar að segja það þannig). Rétt fyrir lok leiksins náði síðan Sólveig að setja sjötta markið okkar og lokatölur því 6-1. Ég var mjög ánægður með spil okkar. Við höfum náttúrulega ekki haft tækifæri til þess að æfa föst leikatriði, hornspyrnur, aukaspyrnur o.fl. en ég var heilt yfir mjög ánægður með frammistöðu okkar. Það skiptir þó miklu máli að við æfum vel á næstunni til þess að laga þessi atriði. Við verðum í kjölfarið miklu sterkara lið og munum taka á sterki liðum. Byrjunarliðið: Imbó, Soffía, Marí, GÞ, Birta, Elín, Íris, Ásdís, Andrea, Kolfinna, Veronika Varamenn: Helga, Sólveig og Marsí Gangur leiksins: 5-0 (5-0) 5-1, 6-1 Mörk okkar: Íris 2, Veronika, Kolfinna, Elín, Sólveig Atvik leiksins: fimm leikmenn sem skoruðu mörkin sex og það er mjög ánægjulegt - við sköpuðum okkur mörg færi. Stjörnugjöf: **1/2 (af fimm mögulegum - erum á réttri leið en getum enn betur).

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2012 16:59:39 / stebbik

Foreldrafundur á miðvikudaginn kemur kl. 20:45

Foreldrafundur á miðvikudaginn úti í KR Fundarefni * Æfingatímar * Verkefni framundan * Kynning á þjálfurum Æfingatímar á næstunni eru þannig Mán. 17:30 - 19:00 Mið. 19:00 - 20:30 Fim. 17:30 - 19:00 Laug. 9:00 - 10:00 og 11:00 - 12:30 Við spilum æfingaleik á sunnudaginn í Egilshöll kl. 15:00 - nánar síðar Æfing á laugardaginn getur skarast aðeins - nánar síðar

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2012 06:46:08 / stebbik

Fyrsta æfing í rjómablíðu

Það er naumast veðrið sem við fáum til að byrja í dag :) Við látum það ekki á okkur fá - æfingar munu ekki falla niður. Eins og ég sagði á fundinum þá veit ég ekki alveg hvernig notkunin á gervigrasinu er í dag en við sníðum okkur einfaldlega stakk eftir vexti. (Þær sem ekki skilja það sem ég skrifa - einfaldlega lesa orðabækur) Hlakka til að sjá ykkur kl. 17:30

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 12:51:40 / stebbik

Nú byrjum við þetta af krafti

Æfing á mánudaginn er klukkan 17:30 Þið takið með ykkur +1 Hlakka til að sjá góðan fjölda mæta SKK

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2011 11:03:42 / fjaroflun

Jólafrí

Nú eru við komin í jólafrí æfingar hefjast í byrjun jan,

Gleðilega hátíð

k

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2011 14:06:18 / fjaroflun

Jólamótið 17.des

Hérna er linkur á leikja niðurröðun http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=26263

Duglegar að mæta á næstu æfingar..

kv.kalli

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2011 16:12:22 / fjaroflun

Ekki hægt að æfa í dag vegna ófærðar

það er ekki hægt að æfa í dag þar sem völlurinn er ófær.. en það er kominn niður röð fyrir jólamótið.. http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=26244 kv.þjálfarinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2011 13:51:37 / fjaroflun

Stelpufjör

Jæja stelpur.. Nú drögum við vinkonur og allar þær sem hafa æft með okkur á æfingar í þessari og næstu viku, setjum stefnuna á DK;)

planið er að hafa pizzu kvöld í næstu viku..

kv.þjálfarinn

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2011 17:33:18 / fjaroflun

Foreldra fundur

Stefnan er að hafa foreldra fund um málefni 4.fl kvk á fimmtudaginn 27.okt kl 20.00 í KR

kv.kalli

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2011 16:48:23 / stebbik

sumarbústaður

það bendir allt til þess að það þurfi foreldra til að skutla.

Það eru mest 7 pláss sem vantar og því þarf annaðhvort einn stóran bíl eða tvo litla

Látið vita sem fyrst hverjir gætu treyst sér í þetta verkefni!

og eins og ég sagði áður þá eru foreldrar sem skutla velkomnir að vera með okkur yfir daginn!

kv.
Tóta

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2011 20:06:49 / stebbik

Bústaður á sunnudaginn


Á sunnudaginn ætlum við að ljúka þessu frábæra sumri saman með að fara upp í sumarbústað við Þingvallavatn.

Við leggjum af stað frá KR kl hálf 11 á sunnudagsmorgun og tekur ferðin tæpan klukkutíma.
Pabbi minn fer á bíl, ég fer á bíl, Stebbi fer á bíl og ef allar (sem við vonum að gerist) komast þyrftum við a.m.k. eitt foreldri til að skutla til viðbótar.(Auðvitað væri sú/sá hin/n sama/i velkomin að vera með okkur yfir daginn).

Við grillum og förum í ýmsa leiki og slaufum sumrinu með stæl.

Það er leikur hjá mfl.kk. á sunnudaginn kl 17 og við ætlum að enda ferðina í Kaplakrika og horfa á leikinn saman.

Það var smá afgangur af peningnum frá Sauðárkróki og því þurfið þið aðeins að borga 800 kr. hver fyrir þessa fínu ferð. 


Svo við vitum hvað við eigum að kaupa í búðinni og hvort það þurfi foreldra til að skutla

vinsamlegast látið vita hvort þið komist eður ei hér í athugasemdakerfið fyrir neðan.


Ef það eru einhverjar spurningar hringið þá bara í mig 868-1148!


p.s. Það er KV-leikur á aðalvelli KR á laugardaginn kl 14 sem er úrslitaleikur í 3.deildinni og það væri gaman að sjá ykkur á honum.

Hlakka til að sjá ykkur sem langflestar,
Tóta :D



» 24 hafa sagt sína skoðun

07.09.2011 22:02:31 / stebbik

Næst á dagskrá!

Blessaðar,

Ég setti inn hér fyrir neðan mætingarlista fyrir júlí og ágúst og sigurvegara!

á morgun, fimmtudaginn 8. sept., er æfing út í KR kl 17:30

Á sunnudaginn vil ég síðan bjóða ykkur skvísunum upp í bústað til mín við Þingvallavatn og enda sumarið með gillveislu og eintómri gleði. 

Ég mun setja á morgun eða á föstudaginn nánari upplýsingar hér inn um ferðina.

Tóta

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.09.2011 21:56:10 / stebbik

Mætingar fyrir júlí og ágúst

Sælar dömur,

Hér kemur mæting fyrir ágúst...
af 15 æfingum var:


Þórhildur         13,5
Þórdís             8
Sigga Maja      11
Inga-Lill           13
Björk               11
Stella                14
Karitas              11
Brynja               12,5
Indíana              12    
Guðrún K          13
Guðrún S           9,5
Ólöf                   9
Sunna                11,5
Unnur                 5
Vala                   11
Högna               12
Rósa                  14
Anna                  7,5
Íris                     7,5
Guðrún Þ           10,5
Veronika            7,5
Kolfinna             9,5 
Imbó                  12
Marianne            10
Ásdís                  8
Elín                     9,5


ég sá allt í einu að ég hafði gleymt að setja inn fyrir júlí svo hér kemur það!

Af 15 æfingum var:

Þórhildur         14,5
Þórdís             9
Sigga Maja      10,5
Inga-Lill           13,5
Björk               8
Stella                7,5
Karitas              7
Brynja               11
Indíana              14,5    
Guðrún K          13,5
Guðrún S           6,5
Ólöf                   6,5
Sunna                11
Unnur                 1
Vala                    7
Högna               12,5
Rósa                  12
Anna                  10
Íris                     13
Guðrún Þ           11
Veronika            12
Kolfinna              15  Vann með bestu mætinguna fyrir júlí!
Imbó                  11,5
Marianne             13
Ásdís                  7,5
Elín                     3,5
Ása                     2
Álfrún                  3  


Vinningshafar sumarsins eru því:
Ágúst: Stella og Rósa
Júlí: Kolfinna
Júní: Guðrún Sólveig
Maí: Guðrún Kolbeins, Guðrún Þorláks, Inga-Lill og Þórhildur

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 50
Þjálfari
Þjálfarar
Björgvin Karl
S:86933586
kalli101@hotmail.com

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 599 dögum
Við byrjum æfingar að nýju
Könnun
Eruð þið búnar að skoða KSÍ-diskinn?
5 atkvæði

Nei
2 atkvæði

Já og ég er byrjuð að æfa mig
4 atkvæði

Já og ég kann nú þegar tvö trix.
1 atkvæði

Nei ég er að bíða eftir bókinni.
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 12
Æfingatöflur
Heimsóknir
Í dag:  27  Alls: 160241